Svæðin
Við erum sérfræðingar í svæðunum á suður-Spáni en þar má segja að Íslendingar hafi byrjað að skjóta rótum fyrir rúmlega 30 árum síðan. En við erum að sama skapi í samstarfi við aðila á öðrum svæðum á Spáni þannig að í raun aðstoðum við þig við leit og þjónustu hvar sem er á Spáni.
Til að einfalda hlutina að þá höfum við skipt svæðunum upp í þrjú svæði til að fólk geti áttað sig betur á þeim. Við erum svo bara einu símtali frá til að útskýra þetta enn frekar fyrir þér.

Costa Blanca Suður
Sól, strendur og lífsstíll frá Alicante til Mil Palmeras.
Svæðið frá Alicante og suður til Mil Palmeras er eitt vinsælasta svæði Spánar fyrir þá sem vilja njóta sólarinnar, góðs veðurs og þægilegs lífsstíls – hvort sem er í fríi eða til þess að búa í.
- Meira en 320 sólardagar á ári
- Sterkt Íslendingasamfélag
- Frábært úrval af fasteignum
- Nálægð við Alicante flugvöllinn

Costa Cálida
Falin perla frá Lo Pagán til La Manga með Mar Menor lóninu.
Svæðið frá Lo Pagán og niður til La Manga er eitt af best geymdu leyndarmálum Spánar. Hér færðu rólegra andrúmsloft, einstaka náttúru, mjög vaxandi fasteignamarkað og allt við hlýjan og kyrran sjó.
- Almennt hlýrri og rólegri sjór í Mar Menor
- Minna þéttbýli og afslappaðra andrúmsloft
- Hagstæðara fasteignaverð
- Vaxandi svæði með mikla möguleika

Costa Blanca Norður
Einstakur sjarmi frá Altea til Villajoyosa.
Svæðið frá Altea niður til Villajoyosa er eitt af eftirsóttustu svæðum Costa Blanca – þar sem náttúrufegurð, rólegt andrúmsloft og nútímaleg þægindi fara fullkomlega saman.
- Fjölbreytt svæði — frá líflegum borgum til rólegra hverfa
- Stórkostlegt útsýni yfir haf og fjöll
- Nútímalegar nýbyggingar í Finestrat
- Nálægð við Alicante flugvöll
Spennandi borgir og bæir
Hér eru nokkrir af vinsælustu áfangastöðunum okkar.


Elche
Söguleg borg með grænum svæðum, sterku atvinnulífi og frábærri staðsetningu á Costa Blanca.
Lesa meira →





Benijófar
Lítill og krúttlegur bær, vaxandi með miklum vinsældum meðal erlendra fasteignakaupenda.
Lesa meira →

San Miguel de Salinas
Bærinn á hæðinni með fallegu útsýni, rólegu lífi og sterkum fasteignamarkaði.
Lesa meira →
Vistabella Golf Resort
Nútímalegt golf- og íbúðasvæði með rólegu umhverfi og vaxandi vinsældum.
Lesa meira →






Santiago de la Ribera
Hefðbundinn strandbær með fjölskylduvænu umhverfi og fallegri strandlengju.
Lesa meira →



