
Fasteignasalan þín á Spáni
Njóttu lífsins
á Spáni
Við leiðum þig örugglega í gegnum allt kaupferlið og finnum draumaeignina þína á Costa Blanca svæðinu.
Eignir
Eignir í boði
Skoðaðu úrval okkar af íbúðum, raðhúsum og einbýlishúsum á suður-Spáni.
Þjónustan
Þjónustan okkar
Þjónustan okkar endar ekki við afhendingu eignarinnar — í rauninni er það oft bara byrjunin.
Fasteignakaup frá A til Ö
Við sjáum um allt sem þarf, frá fyrstu skoðunarferð til afhendingar lykla. Lögfræðingar, bankar, NIE-númer og umboð — við erum þinn hagsmunaaðili allan tímann.
Líf á Spáni
Skólar fyrir barnafjölskyldur, flutningur á gæludýrum, kaup á bíl, húsgögn, internet, sundlaugahitarar — við aðstoðum við allt sem þarf til að gera nýtt heimili þægilegt.
Útleiga eigna
Viltu fá tekjur af eigninni þinni? Við sjáum um allt — afhendingu lykla, móttöku gesta, akstur frá flugvelli, þrif, viðhald og reglulegt eftirlit.
Svæðin
Svæðin okkar
Við erum sérfræðingar í suður-Spáni og þekkjum svæðin út í gegn. Smelltu á svæði til að lesa meira.
Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu nýjustu fréttirnar
Af hverju Pálmi?
Við erum á staðnum, alla daga
Flestir starfsmenn Pálma búa og starfa á Spáni og hafa gert í áraraðir. Við þekkjum svæðið vel og erum einfaldlega „fótgönguliðinn þinn á staðnum“.
Heiðarleiki og fagmennska
Við vinnum eingöngu með traustum samstarfsaðilum — lögfræðingum, bönkum, byggingaraðilum og þjónustuaðilum — til að tryggja að viðskiptavinir okkar njóti öruggrar og gagnsærrar þjónustu frá upphafi til enda.
Langtímasamband, ekki einnota viðskipti
Þjónustan okkar heldur áfram löngu eftir að lykillinn að nýju eigninni er kominn í hendurnar á þér. Við erum til staðar fyrir spurningar, ráðgjöf og lausnir — stórar sem smáar.
Tilbúin/n í næsta skref?
Hafðu samband við okkur og við byrjum á því að finna út hvað hentar þér best.
Hafa samband


