Kaupferlið – einfaldara en þú heldur
Þú ert væntanlega eins og svo margir sem hafa setið á köldum vetrardegi á Íslandi og látið hugann reika til sólríkra daga við Miðjarðarhafið.
Morgunkaffið á svölunum, golfhringir í Janúar, gönguferðir við ströndina eða einfaldlega meiri tími með fjölskyldunni í hlýju og afslappandi umhverfi.
Sífellt fleiri velja að láta drauminn verða að veruleika með því að kaupa fasteign á Spáni. Hvort sem markmiðið er að eignast sumarhús, fjárfestingareign, annað heimili eða framtíðarbúsetu að þá býður Spánn upp á einstaka samsetningu af veðurfari, lífsgæðum, öryggi og hagstæðu fasteignaverði.
Fasteignakaup erlendis geta verið flókin og erfið en raunveruleikinn er sá að með réttri ráðgjöf og þjónustu getur kaupferlið verið bæði öruggt og einfalt. Hjá Pálma færðu Íslenska þjónustu og leiðsögn í gegnum allt ferlið, frá fyrstu fyrirspurn þar til þú heldur á lyklunum að nýju eigninni þinni.
Við þekkjum þarfir kaupenda og vitum hvaða spurningar vakna þegar fjárfest er í fasteign erlendis. Þess vegna vinnum við með traustum lögfræðingum, bönkum og sérfræðingum á Spáni til að tryggja að kaupin fari fram á öruggan og faglegan hátt.
Hvort sem þig dreymir um íbúð við ströndina á Costa Blanca, glæsilegt einbýlishús með sundlaug eða nútímalega nýbyggingu með sjávarútsýni, þá erum við hér til að hjálpa þér að finna eign sem hentar þínum þörfum og fjárhag.
Þú stjórnar ferðinni, við finnum það sem þú vilt
Verðbil, einbýli, fjölbýli, einkasundlaug, á golfsvæði, í borg, nálægt skólum, í göngufæri við verslanir og veitingastaði, sem einkaheimili, til að leigja út, nálægt strönd, nýtt eða nýlegt, gamalt eða til uppgerðar? Við aðstoðum við allt.
Skoðunarferð
Þegar þú ert komin með grunn hugmynd af því sem þú vilt mælum við með því að plana skoðunarferð til þess meðal annars að skoða eignir, átta sig á svæðunum, fá NIE númer, gera umboð og fá tilfinningu fyrir öllu ferlinu. Pálmi býður upp á sérsniðnar skoðunarferðir þar sem stór hluti ferðar er endurgreidd ef að kaupum verður.
Dæmi um uppbyggingu skoðunarferðar.
Í sameiningu byrjum við á að finnum tíma sem hentar þér/ykkur en 5–7 dagar er afar vinsæll tími fyrir skoðunarferð. Með okkar samstarfsaðilum finnum við svo allra besta verðið í flugi og gistingu.
Á meðan skoðunarferð stendur er starfsmaður Pálma eingöngu með þér. Sem fyrr, við sjáum um þig frá A–Ö sbr. sækjum þig á flugvöllinn, förum með þig á gististað, þvælumst um, skoðum svæðin, skoðum eignir, förum og græjum NIE númer, umboð ofl. ofl. Allt okkar starfsfólk og samstarfsaðila eru með þér á meðan skoðunarferð stendur.
Það má því með sanni segja að skoðunarferðin er eitt mikilvægasta skrefið í kaupferlinu þar sem væntanlegir kaupendur fá skilning á mismunandi svæðum, staðarháttum, menningu svæða og almenna þekkingu á mismunandi eignum og hentar því þeim sem eru tilbúnir til að taka skrefið í að eignast draumaeignina.
Þess má geta að ef á kaupum á nýrri eign verður í framhaldi af skoðunarferð er skoðunarferðargjald endurgreitt að fullu fyrir allt að tvo aðila við afsal.
Bankaviðskipti og fjármögnun
Fjármögnun íbúðarkaupa á Spáni er mjög hagstæð en vextir á íbúðarlánum hjá spænskum bönkum eru óverðtryggðir og yfirleitt mun lægri en gengur og gerist á Íslandi. Vextirnir eru annað hvort fastir eða breytilegir. Með breytilegum vöxtum eru vextirnir þannig byggðir upp að þeir grundvallast á EURIBOR-vöxtunum á hverjum tíma ásamt vaxtaálagi viðkomandi banka. Breytilegir vextirnir eru samt þó yfirleitt fastir fyrstu 12–24 mánuðina en þeir eru síðan alltaf endurskoðaðir á 12 mánaða fresti og hækka þá eða lækka eftir því hve háir EURIBOR-vextirnir eru á þeim tímapunkti. Vaxtaálag bankans breytist aldrei. Einnig er yfirleitt í lánaskilmálunum ákvæði þess efnis að vextirnir fara aldrei yfir tiltekna prósentu og aldrei niður fyrir tiltekna prósentu. Með föstum vöxtum eru vextirnir ákvarðaðir strax í upphafi og eru fastir allan lánstímann.
Lánstími
Allt upp í 30 ár og fer eftir aldri lánþega. Sem dæmi fengi fólk á fertugsaldri allt að 30 ára lán en fólk á sextugsaldri líklega ekki nema 15–20 ára lán því bankar miða við að lánið sé að fullu uppgreitt við 75 ára aldur.
Veðsetning
Allt að 60–75% af bankamati eða söluverði eignar. Það er bankinn sem sendir sinn fulltrúa til að skoða og verðmeta eignina sem verið er að biðja um lán á. Mat bankans (bankamat) er það mat sem bankinn miðar við varðandi mögulega lánsfjárhæð.
Lánsumsókn og gögn
Gögn sem þarf eru almennt sambærileg við það sem gerist á Íslandi sbr. skattaframtal, launaseðlar síðustu 3ja mánaða, bankayfirlit síðustu 3ja mánaða, afrit af greiðsluseðlum vegna bílalána, íbúðarlána og annarra lána ef einhver eru. En sem fyrr og eins og hefur komið fram hér að ofan eru starfsmenn Pálma með þessa hluti á hreinu og sinna þessum hlutum með þér — engar áhyggjur :)
Kostnaður við kaupin
Kostnaður kaupanda við fasteignakaup á Spáni er almennt um 12–14% sem leggst ofan á kaupverð. Ekki er lánað fyrir kostnaðinum.
| Liður | Kostnaður |
|---|---|
| Skattur til spænska ríkisins | 9% af kaupverði |
| Bankamat (ef lán er tekið) | 150–400 € |
| Orkusamningar (vatn og rafmagn) | 300–500 € |
| NIE-númer + þýðingar og notarý | ~270 € |
| Lögfræðikostnaður og umsýslugjald | 2.000–2.900 € |
| Lántökukostnaður (ef lán) | 3–4% af lánsfjárhæð |
Rekstrarkostnaður og árlegir skattar
Almennur rekstrarkostnaður eigna á Spáni er mun hagstæðari en t.d. á Íslandi.
Fasteignagjöld
300–1.500 € á ári
Sameignargjöld
25–150 € á mánuði
Tryggingar
~500 € á ári
Rafmagn + vatn
~1.400 € á ári (3 svefnh.)
Rafmagns- og vatnskostnaður er að sjálfsögðu mismunandi eftir notkun og magni en almennt má brjóta hann niður svona miðað við 50% notkun á ári í 3 svefnherbergja eign (ca. 180 daga notkun fyrir 4 manna fjölskyldu): vatn 600 evrur, rafmagn 800 evrur, eða samtals um 1.400 evrur á ári.
Tilbúin/n að taka fyrsta skrefið?
Hafðu samband og við byrjum á því að ræða saman — án skuldbindinga.
Hafa samband