← Til baka í Svæðin

Costa Cálida – falin perla frá bænum Lo Pagán til La Manga

Svæðið frá Lo Pagán og niður til La Manga er eitt af best geymdu leyndarmálum Spánar. Hér færðu rólegra andrúmsloft, einstaka náttúru, mjög vaxandi fasteignamarkað og allt við hlýjan og kyrran sjó.

Costa Cálida – falin perla frá bænum Lo Pagán til La Manga

Lo Pagán, San Javier og San Pedro del Pinatar

Í Lo Pagán, San Javier og nærliggjandi bænum San Pedro del Pinatar finnur þú frægu leirböðin. Um er að ræða náttúrulegt fyrirbæri sem laðar að sér bæði heimamenn og ferðamenn. Svæðið er þekkt fyrir heilsusamlegt loftslag, rólegar strendur og afslappaðan lífsstíl. Svona „Bláa lón“ Spánverja.

Mar Menor

Mar Menor er einstakt – stórt saltvatnslón sem er grynnra og hlýrra en Miðjarðarhafið sem gerir það fullkomið fyrir t.d. vatnaíþróttir og þá sem vilja njóta rólegs sjávar. Mar Menor er eitt helsta aðdráttarafl Costa Cálida.

Los Alcázares

Aðeins sunnar tekur bærinn Los Alcázares við, vinsæll strandbær með fallegri strandgöngu, góðum veitingastöðum og lifandi samfélagi allt árið um kring. Á svæðinu er svo stutt í verslunarmiðstöðina Dos Mares en hún er opin alla daga ársins en þar í kring má að auki finna alla almenna þjónustu, stórverslanir og skyndibitastaði.

La Manga

Nær La Manga breytist landslagið og verður enn sérstæðara. La Manga er mjó landræma sem skilur að Mar Menor og Miðjarðarhafið – sem þýðir að þú hefur strendur beggja megin við tangann. Þetta er einstök staðsetning sem býður upp á stórbrotið útsýni og fjölbreytt líf við sjóinn. Gaman er að keyra tangann og upplifa sérstöðuna.