← Til baka í Svæðin

Costa Blanca Norður – einstakur sjarmi frá Altea til Villajoyosa

Svæðið frá Altea niður til Villajoyosa er eitt af eftirsóttustu svæðum Costa Blanca – þar sem náttúrufegurð, rólegt andrúmsloft og nútímaleg þægindi fara fullkomlega saman.

Costa Blanca Norður – einstakur sjarmi frá Altea til Villajoyosa

Altea

Í Altea finnur þú hinn klassíska spænska sjarm – hvítþvegin hús, þröngar götur og stórkostlegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Þetta er bær sem laðar að sér listafólk og þá sem vilja njóta rólegs og fallegs umhverfis með einstökum karakter.

Albir

Skammt frá er Albir, vinsælt svæði meðal erlendra kaupenda þar sem allt er til alls – falleg strandganga, góðir veitingastaðir og þægileg dagleg þjónusta. Fullkomið fyrir bæði frí og langtímadvöl.

La Nucía

Innar í landinu, aðeins frá ströndinni, er La Nucía sem hefur orðið sífellt vinsælli kostur. Þar færðu meira rými, rólegra umhverfi og oft betra verð á fasteignum – án þess að fórna nálægð við ströndina. Svæðið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna og þeirra sem vilja búa allt árið um kring.

Finestrat

Við hliðina á Benidorm finnur þú Finestrat, sem hefur þróast hratt undanfarin ár. Þar eru nýjar og nútímalegar íbúðir og villur með stórbrotnu útsýni yfir hafið og borgina. Þetta svæði er sérstaklega spennandi fyrir fjárfesta og þá sem vilja nýbyggingar með öllum nútímaþægindum.

Benidorm

Þó Benidorm sé þekkt fyrir líflegt mannlíf og langar sandstrendur, þá býður nágrennið einnig upp á rólegri hverfi og fallegar eignir sem henta fjölbreyttum þörfum.

Villajoyosa

Lengra suður tekur Villajoyosa á móti þér með sínum litríku húsum, heillandi gömlum bæ og afslöppuðu spænsku andrúmslofti. Þar færðu ekta spænska upplifun, svona meira „heimilislegt“. Að auki er Villajoyosa heimili og fæðingarstaður Valor súkkulaðsins.