Golf á Spáni

Á Costa Blanca og Costa Cálida svæðinu spilarðu golf allt árið um kring. En af hverju er svæðið svona vinsælt fyrir golfara?

Stöðugt og gott veður 320 daga á ári

Suður-Spánn hefur eitt stöðugasta loftslag Evrópu. Vetur eru mildir og sumur heitir, sem þýðir að golfvellir eru opnir og leikhæfir allt árið.

Lengra golftímabil — meiri leikgleði

Í mörgum löndum Evrópu er golf aðeins 6–7 mánaða íþrótt. Á suður-Spáni er hún 12 mánaða lífsstíll.

Lægri kostnaður

Þó svo að golf sé að hækka í verði um allan heim þá er golf á Spáni yfirleitt hagkvæmara en á svæðum eins og Bandaríkjunum og norður-Evrópu. Fleiri hringir — minna verð — meiri gleði.

Verð per 18 holur: 40–160 € · Tugir valla á svæðinu

Golfvellir á svæðinu

Hér eru helstu vellirnir í kringum starfsstöð okkar.

Las Colinas Golf & Country Club

Las Colinas Golf & Country Club

2010

Einn virtasti golfvöllur á Costa Blanca, par 71, hannaður af Cabell B. Robinson. Lokað svæði með öryggisgæslu allan sólarhringinn og einkaströnd við Cabo Roig.

Lesa meira →
Villamartín

Villamartín

1972

Einn elsti og þekktasti völlurinn á svæðinu. 18 holu par 72, þekktur fyrir þroskaðan gróður og krefjandi hönnun.

Lesa meira →
Las Ramblas

Las Ramblas

1991

Einstakur völlur með dramatísku landslagi, djúpum giljum og fallegu útsýni. Krefst nákvæmni og góðrar stefnu.

Lesa meira →
Campoamor

Campoamor

1988

Klassískur og mjög vinsæll 18 holu par 72 völlur. Hentar bæði byrjendum og reyndum kylfingum.

Lesa meira →
La Finca Golf

La Finca Golf

2002

Vinsæll, breiður og vel skipulagður völlur með stórum flötum og fallegum vatnshindrunum. 5 stjörnu hótel og spa á svæðinu.

Lesa meira →
Vistabella Golf

Vistabella Golf

2009

Tiltölulega nýr völlur innan lokaðs íbúasvæðis. Nýtt klúbbhús áætlað að opni í maí 2027. Frábær aðstaða fyrir padel og petanga líka.

Lesa meira →
Lo Romero Golf

Lo Romero Golf

2008

„Eyjavöllurinn“ — fræg 18. hola liggur á lítilli eyju umkringdri vatni. Rólegt og fjölskylduvænt svæði.

Lesa meira →
La Marquesa Golf

La Marquesa Golf

1989

Aðgengilegur og skemmtilegur völlur í Ciudad Quesada. Liggur í dal og spilast í raun eins og Y.

Lesa meira →
Saurines de la Torre Golf

Saurines de la Torre Golf

Hannaður af Jack Nicklaus með eyðimerkurlegri hönnun sem minnir á velli í Arizona. Sjónrænt áhrifamikill og tæknilega krefjandi.

Lesa meira →
Altaona Golf & Country Village

Altaona Golf & Country Village

Nýrra og metnaðarfyllra svæði í Murcia, við rætur Sierra de Carrascoy fjallanna.

Lesa meira →
Club de Golf Altorreal

Club de Golf Altorreal

Norðan við Murcia borg. Hæðótt landslag og fjölbreyttar brautir, vinsæll meðal heimamanna.

Lesa meira →
La Manga Club

La Manga Club

Eitt þekktasta golfsvæði Spánar með þremur 18 holu völlum (South, North, West Course). Hefur hýst fjölda alþjóðlegra móta.

Lesa meira →
Mar Menor Golf Resort

Mar Menor Golf Resort

Hannaður af Jack Nicklaus og Dave Thomas. Aðeins 5 km frá ströndum Los Alcázares.

Lesa meira →
La Torre Golf

La Torre Golf

Nútímalegur völlur, einnig hannaður af Jack Nicklaus. Opið landslag, sandhindranir og hraðar flatir.

Lesa meira →
New Sierra Golf

New Sierra Golf

Minni 9 holu völlur (með möguleika á 18 með endurspili). Afslappað umhverfi og hagstæð verð.

Lesa meira →
Loftmynd af Hacienda del Álamo Golf Resort í Murcia á Spáni

Hacienda del Álamo Golf Resort

Eitt stærsta golf- og íbúðarsvæði á Costa Cálida í Murcia. 18 holu meistaravöllur hannaður af Dave Thomas, með 4 stjörnu hóteli, æfingaaðstöðu og golfakademíu.

Lesa meira →

Vantar þig eign nálægt þínum uppáhalds golfvelli? Hafðu samband og við finnum þá fullkomnu.

Hafa samband