Um Pálma
Pálmi er fagleg og traust fasteignasala með aðsetur í bænum Ciudad Quesada á Costa Blanca suður-svæðinu á Spáni. Að auki erum við með skrifstofu í Engihjalla 8 í Kópavogi þar sem þú getur kíkt í heimsókn og tekið fyrstu skrefin í átt að því að finna draumaeignina á Spáni.
Markmið okkar
Markmið okkar er einfalt — að gera fasteignakaup á Spáni að einfaldri, öruggri og ánægjulegri upplifun. Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu, heiðarleika og fagmennsku í hverju einasta skrefi ferlisins, því við vitum að fasteignakaup erlendis er stór ákvörðun sem krefst trausts og góðrar leiðsagnar.
Meira en bara fasteignasala
En Pálmi er ekki bara fasteignasala. Við lítum á okkur sem samstarfsaðila viðskiptavina okkar til lengri tíma. Við erum á svæðinu og leggjum áherslu á að viðskiptavinir okkar upplifi öryggi og traust frá fyrstu kynnum og viti að þeir hafi áreiðanlegan aðila á staðnum sem getur „reddað málunum" þegar á þarf að halda.
Þjónustan okkar heldur líka áfram löngu eftir að lykillinn að nýju eigninni er kominn í hendurnar á okkar viðskiptavinum. Við erum til staðar fyrir spurningar, ráðgjöf og lausnir — stórar sem smáar. Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um fasteignir, heldur um fólk, lífsgæði og að skapa heimili þar sem gott er að vera.
Við seljum ekki bara fasteignir á Spáni — við hjálpum fólki að lifa lífinu þar.
Þekking og reynsla
Starfsmenn Pálma búa yfir mikilli þekkingu á Costa Blanca svæðinu, fasteignamarkaðnum og öllum þeim atriðum sem skipta máli þegar fjárfest er í eign á Spáni. Við vinnum eingöngu með traustum samstarfsaðilum, svo sem lögfræðingum, bönkum, byggingaraðilum og öðrum þjónustuaðilum, til að tryggja að viðskiptavinir okkar njóti öruggrar og gagnsærrar þjónustu frá upphafi til enda.
Hvort sem þú ert að leita að varanlegu heimili, orlofseign, fjárfestingartækifæri eða húsnæði fyrir atvinnurekstur, þá erum við hér til að ganga skrefin með þér alla leið. Flestir starfsmenn Pálma búa og starfa á Spáni og hafa gert í áraraðir. Við þekkjum svæðið vel og erum einfaldlega „fótgönguliðinn þinn á staðnum".
Við trúum því að góð samskipti og traust séu lykillinn að árangri og leggjum okkur fram við að byggja upp langtímasambönd við viðskiptavini okkar. Við látum verkin tala.
Þjónustan okkar á Spáni
Aðstoð við lífið á Spáni
Þjónustan okkar endar ekki við afhendingu eignarinnar — í rauninni er það oft bara byrjunin. Við aðstoðum við allt sem tengist lífinu á Spáni og leggjum okkur fram um að gera nýtt heimili eins þægilegt og mögulegt er frá fyrsta degi.
- · Upplýsingar um skóla fyrir barnafjölskyldur
- · Aðstoð við flutning á gæludýrum
- · Kaup eða skráningu ökutækja
- · Val á húsgögnum og húsbúnaði
- · Uppsetningu internets og annarra tenginga
- · Lausnir eins og hitarar fyrir sundlaugar, markísur og pergólur
- · Og önnur praktísk atriði sem þarf að huga að þegar flutt er inn í nýtt heimili
Útleiga eigna
Ef þú vilt fá tekjur af eigninni þinni og leigja hana út, annað hvort hluta af ári eða þegar þú ert ekki sjálf/ur á staðnum, getum við einnig séð um það ferli frá A til Ö.
- · Afhendingu lykla
- · Móttöku gesta og akstur frá flugvelli
- · Aðstoð við bílaleigubíla
- · Þrif og viðhald
- · Reglulegt eftirlit með eigninni
Seljendaþjónusta
Gamla heimilið þitt, nýja ævintýri einhvers annars.
Það eru til fasteignasalar sem bara setja skilti í garðinn ... og svo erum það við hjá Pálma. Við elskum notaðar fasteignir vegna þess að þær hafa sál, sögu og karakter. Seljendaþjónustan okkar er hönnuð til að spara þér tíma, grá hár og óþarfa stress.
Við sjáum í raun um allt, faglega myndatöku, hámarks sýnileika á helstu fasteignasíðum þar sem ekki bara Íslendingar sjá eignina heldur allir þeir sem eru á annað borð að leita að notaðri eign á Spáni, sýnum eignina og finnum rétta kaupandann sem sér nákvæmlega sömu töfra og þú sást þegar þú fluttir inn. Fullkomið öryggi frá fyrsta kaffisopa til lokaundirskriftar.
Þannig getur þú notið þess að eiga eign á Spáni með hugarró, vitandi að allt sé í góðum höndum.
