← Til baka í Svæðin

Costa Blanca Suður – sól, strendur og lífsstíll frá Alicante til Mil Palmeras

Svæðið frá Alicante og suður til Mil Palmeras er eitt vinsælasta svæði Spánar fyrir þá sem vilja njóta sólarinnar, góðs veðurs og þægilegs lífsstíls – hvort sem er í fríi eða til þess að búa í.

Costa Blanca Suður – sól, strendur og lífsstíll frá Alicante til Mil Palmeras

Alicante

Í Alicante færðu lifandi borg með öllu sem til þarf, fallega strandlengju, sjarmerandi gömlu hverfin, veitingastaði, verslanir og frábærar samgöngur. Borgin er hjarta svæðisins og hefur verið um árabil. Að auki er flugvöllurinn ca. 10 mínútum frá borginni.

Santa Pola

Aðeins sunnar tekur við bærinn Santa Pola, hefðbundinn spænskur sjávarbær með notalegu andrúmslofti. Hann er vinsæll meðal þeirra sem vilja rólegra líf við sjóinn. Þaðan er t.d. hægt að skjótast yfir til eyjunar Tabarca með vatnataxa sem tekur um 15 mínútur og njóta dagsins við að snorkla og borða góðan mat. Það er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Torrevieja

Eitt þekktasta svæðið (borgin) er Torrevieja sem er Íslendingum vel kunnug enda verið í uppáhaldi lengi hjá mörgum. Þar er mikið úrval af íbúðum, góð þjónusta allt árið og líflegt mannlíf – ásamt fallegum strandgötum og saltlónum sem gefa svæðinu sitt sérstaka yfirbragð. Borgin hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga með mikilli uppbyggingu á hafnarsvæðinu ásamt fleiri svæðum.

Orihuela Costa

Í kringum Orihuela Costa finnur þú nokkur af vinsælustu hverfum svæðisins, eins og Punta Prima, Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Lomas de Cabo Roig. Á svæðinu eru nútímalegar eignir í bland við eldri, fallegar strendur og frábært úrval veitingastaða og afþreyingar. Einnig er La Zenia Boulevard, stór verslunarmiðstöð á svæðinu þar sem flestar alþjóðlegar verslanir eru eins og t.d. Primark.

Pilar de la Horadada

Lengra suður tekur Pilar de la Horadada við – rólegri og hefðbundnari spænskur bær sem hefur þó vaxið hratt á undanförnum árum. Þar má segja að flest sé rýmra, mikið um nýbyggingar og fjölskylduvæn hverfi.