← Til baka í Svæðin

Elche – söguleg borg með grænum svæðum, sterku atvinnulífi og frábærri staðsetningu á Costa Blanca

Elche

Elche er ein stærsta borgin á Costa Blanca og einstök blanda af ríkri sögu, nútímalegu borgarlífi og óvenjulega grænu umhverfi. Borgin er þekkt fyrir pálmalund sinn, sem er sá stærsti í Evrópu, og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakrar menningar og náttúru.

Borgin er staðsett mjög vel, aðeins í um 15 mínútna fjarlægð frá Alicante–Elche Airport og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndum Alicante og Santa Pola. Þetta gerir Elche að mjög þægilegum og miðlægum stað fyrir bæði fasta búsetu og fjárfestingar.

Lífsstíll og samfélag

Lífið í Elche einkennist af jafnvægi milli borgarlífs og rólegs, græns umhverfis. Hér er um að ræða raunverulega spænska borg með sterku atvinnulífi, góðri þjónustu og fjölbreyttu menningarlífi, en án þess að missa tengsl við náttúru og útivist.

Elche hefur einnig sterka íþrótta- og fótboltahefð sem er stór hluti af borgarmenningunni. Borgin er heimili Elche CF, sem spilar núna í efstu deild spænska boltans, La Liga. Heimavöllur félagsins er hinn þekkti Estadio Martínez Valero, einn stærsti og þekktasti fótboltavöllur á Spáni utan allra stærstu stórborga. Þegar Elche CF spilar fyllist borgin af lífi, stemningu og stolti, og fótboltinn er mikilvægur hluti af félagslífi íbúanna. Við hvetjum alla til að prófa að fara á leik með Elche CF. Þessi sterka íþróttamenning gefur borginni aukna dýnamík og gerir hana enn meira lifandi fyrir íbúa sem vilja upplifa ekta spænskt borgar.

Borgin er heimili bæði heimamanna og alþjóðlegs samfélags sem hefur valið Elche vegna góðra lífsgæða, hagstæðra fasteignaverða og nálægðar við ströndina og flugvöll.

Elche hentar sérstaklega vel fyrir:

  • Fjölskyldur sem vilja búa í raunverulegri spænskri borg
  • Fólk sem vinnur á svæðinu eða í fjarvinnu
  • Eftirlaunaþega sem vilja góða þjónustu og öryggi
  • Fjárfesta sem leita að stöðugum og hagkvæmum markaði

Náttúra og græn svæði

Einn helsti styrkleiki Elche er einstakt grænt umhverfi borgarinnar. El Palmeral de Elche er stórkostlegur pálmalundur sem teygir sig um borgina og gefur henni sérstöðu sem fáar borgir í Evrópu geta keppt við.

Þrátt fyrir að Elche sé borg, er stutt í bæði strendur og náttúru. Skammt frá má finna fallegar strandlengjur við Santa Pola og Alicante, sem gera útivist og strandlíf að hluta af daglegu lífi.

Þjónusta og innviðir

Elche er fullþróuð borg með mjög sterka innviði og fjölbreytta þjónustu. Hér er allt sem þarf til daglegs lífs til staðar, sem gerir borgina að mjög traustum kosti fyrir fasta búsetu.