← Til baka í Golf

Hacienda del Álamo Golf Resort

Hacienda del Álamo Golf Resort er eitt stærsta golf- og íbúðarsvæði á Costa Cálida svæðinu í Murcia á Spáni. Um er að ræða 18 holu meistaravöll sem hannaður er af Dave Thomas.

Völlurinn er þekktur fyrir breiðar brautir, vel hirtar flatir og fjölbreyttar holur sem henta bæði byrjendum og reyndum kylfingum.

Á svæðinu er fullkomin æfingaaðstaða með driving range, púttsvæði, chipping-svæði, æfingaglompum og 6 æfingaholum. Þá er einnig golfakademía með einkatímum og námskeiðum.

Fjögurra stjörnu hótel, glæsilegt klúbbhús, veitingastaður og golfverslun eru á svæðinu, auk íþróttaaðstöðu með tennis- og padelvöllum og annarri afþreyingu. Umhverfið er rólegt og gróskumikið með fallegu útsýni.

Hacienda del Álamo er í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá strönd Los Alcázares og um 30 mínútur frá Cartagena og Murcia. Svæðið býður upp á frábæra golfupplifun allt árið þökk sé mildu Miðjarðarhafsloftslagi og hentar jafnt golfáhugafólki, fjölskyldum og þeim sem leita að friðsælu orlofssvæði.

Þess má geta að Golfsamband Íslands er með samning við völlinn með æfingaaðstöðu fyrir úrvalshóp íslenskra kylfinga.