Vistabella Golf
Opnaði 2009
Vistabella Golf er tiltölulega nýr golfvöllur sem hefur á stuttum tíma orðið mjög vinsæll meðal kylfinga og fasteignakaupenda. Völlurinn er innan lokaðs íbúasvæðis en svæðið hefur verið einstaklega vinsælt sl. ár þar sem allt virðist tikka í boxin hjá fasteignakaupendum. Völlurinn opnaði árið 2009 og hefur verið í stöðugri þróun. Nú er verið að leggja lokahönd á nýtt klúbbhús sem áætlað er að opni í maí 2027.
Vistabella er þekktur fyrir breiðar brautir og nútímalega hönnun, sem gerir hann að góðum valkosti fyrir byrjendur og meðalreynda kylfinga. Völlurinn er einnig vinsæll meðal fjölskyldna vegna rólegs umhverfis og góðrar aðstöðu. Fasteignasvæðið í kringum Vistabella hefur vaxið hratt og býður upp á fjölbreyttar eignir. Á svæðinu er að auki frábær aðstaða fyrir t.d. padel og petanga.
