Las Colinas Golf & Country Club
Opnaði 2010
Las Colinas Golf & Country Club er án efa einn virtasti golfvöllur á Costa Blanca svæðinu og hefur ítrekað verið valinn meðal bestu golfsvæða á Spáni. Völlurinn opnaði árið 2010 og hefur síðan byggt upp sterkt orðspor fyrir framúrskarandi gæði, einstaka náttúru og lúxusumhverfi.
Golfvöllurinn er 18 holu, par 71 meistaramótsvöllur sem hannaður var af hinum þekkta golfvallahönnuði Cabell B. Robinson. Völlurinn liggur í fallegum dal umkringdum náttúruverndarsvæði með þéttum furuskógi sem skapar skjól fyrir vindi og rólegt andrúmsloft. Flatirnar eru hraðar og vel viðhaldnar, og brautirnar breiðar en krefjandi, sem gerir völlinn spennandi fyrir bæði byrjendur og reynda kylfinga.
Las Colinas er ekki aðeins golfvöllur heldur heill lífsstíll.
Á svæðinu er meðal annars
Las Colinas er lokað svæði með öryggisgæslu 24/7 eða allan sólarhringinn.
- Glæsilegt klúbbhús með veitingastað
- Íþróttaaðstaða og líkamsrækt
- Göngu- og hjólaleiðir
- Einkaströnd (Beach Club) við Cabo Roig ströndina
Fjarlægðir Las Colinas
- Um 10 mínútur á strendur Orihuela Costa
- Um 45 mínútur á Alicante flugvöll
- Stutt í verslanir og þjónustu
