Útimarkaðir á Costa Blanca – ferskleiki, gæði og spænsk stemning
← Til baka í Fréttir

01.07.2026

Útimarkaðir á Costa Blanca – ferskleiki, gæði og spænsk stemning

Markaðirnir á Costa Blanca eru meðal þess sem bæði heimamenn og erlendir gestir og íbúar kunna hvað best að meta. Á hverjum einasta degi fyllast torg og götur af litríkum sölubásum þar sem boðið er upp á ferska ávexti, grænmeti, staðbundnar afurðir og fjölbreytt úrval annarra vara.

Ein helsta ástæða vinsælda markaðanna er ferskleiki vörunnar. Mikið af ávöxtum og grænmeti kemur beint frá ræktendum á svæðinu eða frá nærliggjandi ræktunarsvæðum í Alicante og Murcia. Stuttar flutningsleiðir tryggja að vörurnar berist neytendum ferskari, bragðbetri og oft á hagstæðara verði en víða annars staðar.

Costa Blanca nýtur einstaklega hagstæðs loftslags með yfir 320 sólardögum á ári, sem gerir svæðið að einu mikilvægasta ræktunarsvæði Evrópu fyrir ferskt grænmeti og ávexti. Þar má meðal annars finna sítrusávexti, tómata, paprikur, melónur, vínber og fjölbreytt úrval kryddjurta sem eru uppskornar nær allt árið um kring.

Markaðirnir bjóða þó upp á mun meira en ferskvöru. Gestir geta einnig fundið osta, ólífur, krydd, fatnað, skó, heimilisvörur og ýmiss konar handverk. Fyrir marga er markaðsdagurinn jafnframt félagslegur viðburður þar sem fólk hittist, nýtur kaffibolla og upplifir líflega spænska stemningu.

Þá gegna markaðirnir mikilvægu hlutverki í að styðja við staðbundna framleiðendur og smærri fjölskyldufyrirtæki. Með því að versla á markaði styrkja neytendur nærumhverfið og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu staðbundins atvinnulífs.

Markaðir Costa Blanca eru því ekki aðeins vinsæll verslunarstaður heldur einnig órjúfanlegur hluti af menningu og lífsstíl svæðisins – staður þar sem ferskleiki, gæði og samfélag mætast í einstöku umhverfi.

Vikudagatal yfir útimarkaði á Costa Blanca frá La Marina til Los Alcázares
Vikudagatal – helstu útimarkaðir á svæðinu frá mánudegi til sunnudags.

Við höfum tekið saman helstu markaði á svæðinu. Endilega verið dugleg að fara á mismunandi markaði, en hafið alltaf í huga að þar sem mikið af fólki kemur saman er alltaf eitthvað um „óheiðarlega aðila / vasaþjófa“ – svo gamla góða reglan að hafa varann á er alltaf góð.