Innrauð hitun, hlýja sem þú finnur án þess að hita allt loftið upp
← Til baka í Fréttir

16.09.2026

Innrauð hitun, hlýja sem þú finnur án þess að hita allt loftið upp

INNRAUÐ HITUN. Hlýja sem þú finnur án þess að hita allt loftið upp. Við hjá Pálma höfum samið við fyrirtækið Calor Radiante fyrir hönd okkar viðskiptavina en Calor Radiante eru sérfræðingar í innrauðri hitun á Costa Blanca svæðinu.

Smá upplýsingar. Innrauð hitun er öðruvísi en hefðbundin upphitun. Í stað þess að hita fyrst og fremst upp loftið í rýminu gefur kerfið frá sér langbylgju innrauða geislun sem hitar veggi, húsgögn og aðra fleti og þar með verður hitinn jafnari og meira umlykjandi.

Hiti sem minnir á sólargeislana. Þú þekkir tilfinninguna þegar þú situr úti á svölum eða verönd í sól. Loftið getur verið kalt en samt finnurðu hlýjuna á húðinni.

Innrauð hitun byggir á svipaðri meginreglu. Hitinn er ekki aðeins í loftinu heldur finnst hann beint í rýminu og frá þeim flötum sem hitinn nær til.

Af hverju innrauð hitun ?

✔️ Jafnari og þægilegri hiti

✔️ Engin vifta og því hljóðlaus upphitun

✔️ Engin loftblástur sem þyrlar upp ryki

✔️ Hentar vel fyrir íbúðir, einbýlishús og sumarhús

✔️ Hægt að stjórna hitanum með hitastilli

✔️ Mörg útfærsluform – vegg-, loft- og aðrar lausnir

✔️ Fljótlegt að fá hita þar sem hans er þörf

✔️ Hentar sérstaklega vel þar sem ekki er þörf á upphitun allan daginn

Öll kerfi Calor Radiante nota rafmagn og fyrirtækið býður upp á fjölbreyttar lausnir eftir stærð rýmis, notkun og þörfum hvers viðskiptavinar.

Fyrir marga Íslendinga á Costa Blanca er fasteignin ekki heimili allt árið. Þá getur verið óþægilegt að halda húsinu heitu allan daginn þegar enginn er þar.

Innrauð hitun hentar vel fyrir slíkar aðstæður þar sem hægt er að hita upp rýmið þegar þess þarf og stjórna hitanum eftir þörfum.

Calor Radiante bendir jafnframt á að mögulegur orkusparnaður sé háður þáttum eins og einangrun, lofthæð, notkun og hitastillingum. Fyrirtækið gefur upp mögulegan 30–50% orkusparnað við ákveðnar aðstæður, en raunverulegur sparnaður fer eftir hverri eign fyrir sig. Skoða vörur: https://calor-radiante.com

📩 Viðskiptavinir Pálma njóta sérstakra kjara hjá Calor Radiante. Hafðu samband við okkur og kynntu þér möguleikana á innrauðri hitun fyrir þína eign á Spáni.